Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu gott fjögurra til fimm herbergja einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr að Eyjavöllum 2 í Keflavík.  

Nánari lýsingr:

Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Forstofusalerni með flísum á gólfi og veggjum, þar er handlaug.
Hol með parketi á gólfi.
Stofa með parketi á gólfi. Hluti af stofu hefur verið stúkkaður af og auðvelt væri að breyta því í herbergi.
Borðstofa með parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er stílhrein hvít innrétting með ofni í vinnuhæð ásamt góðu skápa og vinnuplássi. Gert er ráð fyrir uppvottavél.  Inn af eldhúsi er lítið búr, þar eru hillur og lítil skápaeining.
Herbergisgangur með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á hellulagða stétt.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergin tvö eru með parketi á gólfum. Fataskápar eru í þeim báðum og bæði eru mjög rúmgóð.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er ljós innrétting, baðkar og sturta.
Þvottahús með flísum á gólfi. Þar er ljós innrétting. 
Bílskúr er 55,4 fm. Þar eru flísar á gólfi.  Inn af bílskúr er gott rými með flísum á gólfi og fataskáp. Þaðan er aðgengi að ca 20 fm háalofti. Frá þessu rými er innangengt í húsið.

Alrými eignarinnar er opið og bjart.  Falleg eign sem vert er að skoða. Þak var yfirfarið og málað síðastliðið sumar. Búið er að endurnýja kaldavatnslagnir að hluta.

Allar upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Eyjavellir

230 - Keflavík
110.000.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 234fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1989
Stofur: 2
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 110.200.000
Brunabótamat: 126.150.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin