Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu gott fjögurra til fimm herbergja einbýlishús ásamt bílskúr að Hólagötu 15 í Sandgerði, Suðurnesjabæ.

Hér er um að ræða vel staðsett einbýli ásamt tvöföldum bílskúr 62,7m2 að stærð.

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi og fataskáp.
Sjónvarpshol, stofa og borðstofa eru í opnu rými. Þar er parket á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er ljós innrétting með span helluborði og ofni í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél. Inn af eldhúsi er gott rými sem hægt væri að nýta sem búr, þaðan er útgengt.
Herbergisgangur með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á verönd á baklóð.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, þar er fataskápur.
Barnaherbergin eru tvö en voru áður þrjú, auðvelt að breyta aftur. Þar er parket á gólfum og fataskur í þeim báðum.
Baðherbergi með máluðum flísum á gólfi og veggjum. Þar er nýleg innrétting, baðkar og sturta. Inn af baðherbergi er gott gluggalaust rými sem hægt væri að nýta á ýmsan hátt.
Þvottahús með flísum á gólfi, þar er nett innrétting.
Bílskúr með flísum á gólfi. Hann er í dag innréttaður að hluta sem herbergi en auðvelt er að breyta því aftur. Innst í bílskúrnum er stúkkað af fyrir geymslurými. Þaðan er útgengt á litla verönd á baklóð.

Bílaplan var nýlega steypt. Lítil verönd er við framhlið hússins og á baklóð er góð verönd með steyptum potti. Parket á gólfum er nýlegt ásamt innihurðum og fataskápum í herbergjum. Gólfhiti er í forstofu og alrými eignarinnar. Tenglar hafa verið endurnýjaðir. Járn á þaki var endurnýjað fyrir ca 10 árum ásamt þakkant.  

Allar upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.



 

Hólagata

245 - Sandgerði
85.000.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 203fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1980
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 67.050.000
Brunabótamat: 89.800.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin