Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða 2ja-3ja herbergja íbúð á annarri hæð í Fífumóa 1a í Njarðvík.
Um er að ræðar 54,1 fm íbúð samkvæmt Þjóðskrá og skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu
Íbúðin er samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu með einu svefnherbergi en stofu hefur verið skipt upp í tvö rými.



Nánari lýsing:
Forstofa með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Geymsla er inn af forstofu, þar er dúkur á gólfi og hillur.
Stofa/ borðstofa með parketi á gólfi. Stofuni hefur verið skipt upp í tvö rými.
Svefnherbergi 1 með parketi á gólfi og útgangi út á svalir til vesturs. Svefnherbergi 1 er við hlið stofunnar og var upprunalega hluti af stofunni.
Svefnherbergi 2 með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting með ljósbrúna borðplötu, flísar milli neðri og efri skápa, parket á gólfinu og gluggi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, sturtuklefa og aðstöðu fyrir þvottavél.
Svalir eru flísalagðar og snúa í vestur.
Sameiginleg geymsla ásamt sameiginlegri hjólageymslu er á 1. hæð

Skipt hefur verið um gler og glugga að hluta. Gólfhiti er í eldhúsi og svefnherbergi 2.
Nýlega búið að endurnýja þakkant og sprungu viðgerðir á húsinu voru gerðar nýlega.
Að sögn fyrri eiganda er búið að endurnýja neysluvatns lagnir og einnig er forhitari á kerfi.


Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Fífumói

260 - Njarðvík
37.400.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 54fm
Herbergi: 2
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1985
Stofur: 1
Svefnherbergi: 1
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 31.150.000
Brunabótamat: 30.050.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin