PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fjögurra herbergja parhús að Mávatjörn 23 í Njarðvík.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi. Eikar innréttingu með innbyggðum ísskáp / frysti. Flísar á milli efri og neðri skápa. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa / borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt út á sólpall.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Þaðan er útgengt út á sólpall.
Barnaherbergin tvö eru með parketi á gólfum.
Baðherbergi með flísum á gólfum og veggjum, eikar innrétting, upphengt salerni og sturta.
Þvottahús með flísum á gólfi. Ljós innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Frá þvottahúsi er innangengt í bílskúr.
Bílskúr er 23 fm, flísalagt gólf, hurðaopnari. Aðgengi að háalofti sem er yfir eigninni og nýtist vel sem geymsla.
Lóð er frágengin. Hellulagt bílaplan og stétt, snjóbræðsla í stórum parti. Á baklóð er verönd með heitum potti og skjólveggjum. Gluggar og klæðning hússins þarfnast málunar.
Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Mávatjörn
260 - Njarðvík
72.000.000 kr.
Tegund: Parhús
Stærð: 114fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2005
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 64.550.000
Brunabótamat: 57.260.000