Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir fallega 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð að Bogabraut 953 í Reykjanesbæ. 

Eignin var endurnýjuð töluvert árið 2018.

Nánari lýsing:
Hol
með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi og ljósri innréttingu með helluborði, ofni og viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa / sjónvarpshol með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í báðum herbergjum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Þar er ljós innrétting og baðkar með sturtu.

Þvottaaðstaða er á hverri hæð og er sameiginleg fyrir íbúðirnar fjórar á hæðinni, þar er epoxy á gólfi. Sér geymsla er í sameign, þar er epoxy á gólfi. 

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 899-1298 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Bogabraut

262 - Reykjanesbær
44.500.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 92fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1969
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 39.350.000
Brunabótamat: 46.350.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin