PRODOMO fasteignarsala kynnir geymslubil á frábærum stað í Reykjanesbæ að Smiðjuvöllum 10
Epoxy á gólfi og 18fm milliloft. Getur verið afhent flótlega.
Nánari lýsing: Húsið er reist úr límtré sem reist er á staðsteyptar undirstöður. Húsið er klætt að utan með fjöldaframleiddum yleiningum sem koma með innbrenndum lit. Litir eru almennt dökkgráir.
Flassningar verða í einkennandi litum fyrir hvern matshluta.
Húsin eru reist á staðsteyptum sökkli. Samanlögð heildar lóðarstærð er um 9.894 fm.
Frágangur utanhús:
Burðarvirki:Sökklar og botnplata: Járnbent steinsteypa. Útveggir: Límtrésburðarvirki þar sem það á við. Yleiningar með steinullarkjarna. ST 105. Dökk gráar að utan og hvítar að innan
Þak/ Þakvirki: Límtrésburðarvirki þar sem það á við. Yleiningar með steinullarkjarna. ST 175, trapizuformuð þakklæðning. Dökk gráar að utan og hvítar að innan.
Útveggir: Yleiningar með steinullarkjarna. Dökk gráar að utan og hvítar að innan. Allar áfellur eru með innbrenndum lit. Hver matshluti verður aðgreindur með sérstökum kenni-lit.
Raflagnir: Lýsing utanhúss er fullfrágengin LED lýsing. Útilýsingu er stýrt með sólúri í aðaltöflu.
Lagnir: Þakniðurföll og drenlagnir i lóð. Skólpbrunnar er við öll hús þannig hægt sé að rekja mengun í frárennsli á einstaka matshluta. Öll inntök / mælagrindur fyrir hvern matshluta eru í sameiginlegum inntaksrýmum. Inntaksrýmin eru aðskilin fyrir aðaltöflu annarsvegar og heitt og kalt neysluvatn, hinsvegar.
Gluggar og útihurðir: Gluggar og útihurðir eru úr áli. Allt gler er K-gler
Iðnaðarhurðir: 2,5m x 3,0m án mótor. Litur dökk grár.
Lagnir: Blinduð tengi fyrir neysluvatn eru aðgengileg í hverju bili og eru þau upphituð með hitaveituofnum. Niðurföll í gólfi við innkeyrsluhurðir verði hefðbundin en með möguleika að koma fyrir olíugildru í þau ef starfsemi hússins breytist á einhverjum tímapunkti. Hitaveita er sameiginleg fyrir öll geymslurýmin og er húsnæðið hitað upp með hefðbundnu ofnakerfi. Varmaskiptir er við inntak heita neysluvatnsins. Lagt er fyrir salernisaðstöðu.
Frágangur lóðar:
Lóð: Bílastæði eru fullfrágengin með malbikslögn. Steinsteypt sorptunnugerði fyrir tvo framhlaðna gáma verður komið upp innan lóðar. Veggir og gólf utan um gáma verði steinsteypt.Niðurföll með sandfangi verði bæði við sorptunnugerði sem og á akstursleiðum við geymslubil.
Stofnað hefur verið húsfélag sem sér um rekstur á sameiginlegri lóð og öryggiskerfi. Lóð er afgirt með galvaniseraðri öryggisgirðingu.
Komið verður fyrir fjarstýrðu hliði sem hindrar aðkomu óviðkomandi inná lóð.
Sett verða upp 3 stk læsanleg göngu-hlið á öryggisgirðingu. Sett hefur verið upp myndavélakerfi sem rekið er af húsfélagi í sameign allra eignahluta á svæðinu
Allar nánari upplýsingar veitir Hákon Ó Hákonarson löggiltur fasteignasali í síma 899-1298 / 420-4030 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Smiðjuvellir
230 - Keflavík
19.000.000 kr.
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Stærð: 38fm
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2023
Fasteignamat: 10.800.000
Brunabótamat: 14.200.000