PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallega þriggja herbergja íbúð með sér inngangi að Tjarnabakka 6 í Njarðvík. Eignin er á annarri hæð.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er stílhrein eik/hvít innrétting.
Stofa er með parketi á gólfi, þaðan er útgent út á góðar svalir.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, þar eru skápar með rennihurðum.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi og skápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hornbaðkar með sturtu, handklæðaofn, hvít innrétting og upphengt salerni.
Þvottahús er innaf baðherbergi, innrétting með skolvask og skápar á veggjum.
Útigeymsla fylgir eigninni.
Allar nánari upplýsingar veiir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Tjarnabakki
260 - Njarðvík
58.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 96fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2007
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 50.500.000
Brunabótamat: 46.895.000