PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð að Tjarnabraut 16 í Njarðvík.
Góð staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóa. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og örstutt uppá Reykjanesbraut.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi, þar er fataskápur.
Eldhús með flísum á gólfi. Viðar innrétting í eldhúsi, gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á góðar svalir.
Herbergin tvö eru með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Viðar innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtu.
Þvottahús með flísum á gólfi. Þar er skolvaskur og hillur.
Geymsla er inn af þvottahúsi, þar eru flísar á gólfi. Einnig er sameiginleg geymsla í húsinu ásamt hjóla/vagna geymslu.
Húsfélag er í mjög góðum rekstri. Umræða er hafin um að setja upp hleðslustövar.
Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Tjarnabraut
260 - Njarðvík
56.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 91fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2005
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 49.200.000
Brunabótamat: 43.250.000