Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir góða 2ja herbergja íbúð á annarri hæð að Skógarbraut 924 í Reykjanesbæ. 

Eignin var töluvert endurnýjuð árið 2018. Þá var eldhús og baðherbergi endurnýjað ásamt fataskápum og innihurðum. Rafmgnstafla var endurnýjuð og rafmagn að mestu. Ofnar hafa verið endurnýjaðir.  Mögulegt er að bæta við auka herbergi úr hluta af stofurými.


Nánari lýsing:
Hol
með parketi á gólfi og fataskáp. 
Eldhús með parketi á gólfi og ljósri innréttingu með helluborði, ofni og viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél. 
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Þar er ljós innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu.

Þvottaaðstaða er á fyrstu hæð og er sameiginleg fyrir allar íbúðirnar, þar er dúkur á gólfi. Sér geymsla er í sameign, þar er málað gólf.  Sameign er mjög snyrtileg, á gólfum eru vínil flísar og teppi. Eigninni fylgir merkt bílastæði.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarsson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]

​​​​​​Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skógarbraut

262 - Reykjanesbær
42.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 89fm
Herbergi: 2
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1978
Stofur: 1
Svefnherbergi: 1
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 40.900.000
Brunabótamat: 40.850.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin