PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi að Bjarkardal 2 í Njarðvík.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með flísum á gólfi. Stílhrein innrétting með eyju. Ísskápur og uppþvottarvél fylgja með.
Stofa og borðstofa með flísum á gólfi. Þaðan er útgegngt á svalir.
Herbergin tvö eru með flísum á gólfum. Fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtu.
Þvottahús með flísum á gólfi og góðri innréttingu.
Geymsla er innan íbúðar, þar eru flísar á gólfi og gluggi.
Sameiginleg hjóla og vagna geymsla er á hverri hæð. Sameign er mjög snyrtileg með flísum á gólfi og teppi á stiga. Íbúðinni fylgir tvö merkt bílastæði.
Glæsileg eign sem vert er að skoða.
**Sýnum samdægurs**
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
[email protected]
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
[email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Bjarkardalur
260 - Njarðvík
62.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 96fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2008
Lyfta: Já
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 54.000.000
Brunabótamat: 50.000.000