Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallega fjögurra herbergja íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi að Kirkjuvöllum 3 í Hafnarfirði.  OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 23 FEBRÚAR FRÁ 13:00 - 13:30
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Nánari lýsing:
Forstofa
með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými, þar er parket á gólfi. Stílhrein innrétting í eldhúsi með góðu skápa og vinnuplássi. Frá stofu er útgengt á stórar svalir.
Sjónvarphol með parketi á gólfi.
Herbergin þrjú eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim öllum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og stór sturta.
Þvottahús með flísum á gólfi. 
Sér geymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymsla.
Sameign er mjög snyrtileg. Rafhleðslustöðvar eru á bílastæði.

Allar nánari upplýsingar veita Jósep Grímsson Löggiltur fasteignasali í síma 863-1126 og Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kirkjuvellir

221 - Hafnarfjörður
79.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 127fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 2006
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 77.250.000
Brunabótamat: 61.300.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin