PRODOMO fasteignarsala kynnir nýtt raðhús til sölu að Háteig 42-48, 250 Garði Suðurnesjabæ.
Um er að ræða fjórar íbúðir og tvær stærðir, annars vegar 82,1 fm og hins vegar 101,9 fm.
Áætlaður afhendingartími er Maí 2025.
** ATH. ÍBÚÐIR SEM MÖGULEGT VERÐUR AÐ FÁ Á HLUTDEILDARLÁN
sjá allt um hlutdeildarlán hér: https://hms.is/lan-til-einstaklinga/hlutdeildarlan
82,1 fm íbúðin skiptist í anddyri, 2 svefnherbergi, þvottarými, baðherbergi og alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Verð 57.900.000 kr (hlutdeildarlán mögulegt)
101,9 fm íbúðin skiptist í anddyri, 3 svefnherbergi, þvottarými, baðherbergi, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi og 5 fm geymslu. Verð 69.900.000 kr
Innréttingar verða hvítar með melamin áferð bæði í eldhúsi og á baðherbergi.
Fataskápar verða í öllum svefnherbergjum.
Öll gólf verða með harðparketi nema í votrýmum verða flísar.
Nánari lýsing eignar:
Um er að ræða innflutt timburhús frá framleiðandanum SEVE í Eistlandi. Húsið er reist á staðsteyptum sökkli.
Frágangur utanhús:
Útveggir eru timburklæddir með liggjandi klæðningu. Klæðning er meðhöndluð með svartri þekjandi viðarvörn, sem gefur svartan / dökkgráan lit. Allar áfellur eru með innbrenndum hvítum lit
Að innan eru útveggir klæddir með Fermacell (fíbergips) og málaðir með ljós-gráum lit.
Þak er klætt með tveimur lögum af ábræddum þakpappa ofan á OSB þakkrossvið.
Áfellur og þakrennur eru með innbrenndum hvítum lit. Að innan er þak klætt með annarsvegar hvítmáluðum gipsplötum og hinsvegar hvítum loftaplötum með áferð.
Lampar og lýsing er fullfrágengin. Útilýsingu er stýrt með sólúri í rafmagnstöflu.
Öll inntök eru við aðalinngang, tengigrind og dreifing lagna er í geymslum íbúðar. Hitalagnir eru steyptar í botnplötu hússins.
Lagnir fyrir tengingar á útikrönum, vatnsfæðing að heitum potti og frárennsli verða til staðar.
Gluggar og útihurðir eru PVC. Hurðar eru með 3ja. punkta læsingum. Svalahurðir eru með opnunarstillingu. Hurð er úr stofu að sólpalli. Allir gluggar eru með opnunarstillingum. Allt gler er K-gler.
Timburpallur, ca 20 fm er á baklóð íbúða. Frágengnir skjólveggir eru á milli íbúða við timburpall.
Frágangur lóðar:
Bílastæði eru fullfrágengin með hellulögn, járnbentri steinsteypu. Lokað forsteypt sorptunnugerði fyrir 3 sorpílát er við hverja íbúð.
Lóð er fullfrágengin með grasþakningu. Fullfrágenginn timburpallur og skjólveggir milli íbúða eru á baklóð
Frágangur innanhús:
Gólfplata hússins er einangruð, járnbent og staðsteypt. Gólf hússins eru lögð með harðparketi. Gólflistar eru hvítlakkaðir. Gólf á baðherbergji er flísalagt með grófum náttúrulegum steinflísum.
Veggir innanhúss eru klæddir fermacell plötum og málaðir í ljós-gráum lit (RAL 9002). Veggir á baðherbergi eru flísalagðir með grófum náttúrulegum steinflísum.
Innihurðar eru hvít-lakkeraðar. Húnar og lykillauf eru svört að lit. Hvítar innréttingar með melamin áferð. Svartlitaðar höldur.
Hvít eldhúsinnrétting með eyju. Bökunarofn með blæstri. Niðurfellt span-helluborð. Stór eldhúsvaskur og svart blöndunartæki Grohe eða sambærilegt. Eldhústæki eru AEG frá Ormsson eða sambærilegt frá innlendum innflutningsaðila, Baðinnrétting hvít/ljós grá með melamin áferð. Vaskur og blöndunartæki ofan-á borðplötu. Svört blöndunartæki frá Grohe eða sambærilegt. Sturtuklefi eru með þil úr hertu gleri. Svört blöndunartæki, sturtuhaus og handbrúsur í sturtum eru frá Grohe eða sambærilegt.
Raflagnir eru fullfrágengnar. Stofntafla er í inntaksrým. Ljós eru LED ljós með warm lýsingu. Ljós eru dimmanleg. Lágspennukerfi og sjónvarps/tölvutengingar í öllum rýmum. Rofar og tenglar eru svartir að lit frá Berker eða sambærilegt.
Allar hitalagnir eru steyptar í gólfplötu hússins og stýrt með Danfoss hitanemum og stýringum fyrir hvert rými. Salerni eru innbyggð með Ceberit eða Grohe kassa, öll blöndunartæki eru frá Grohe eða sambærilegt.
Byggingaraðili: Heiðarhús ehf
Aðalhönnuður hússins er Guðmundur Þórðarson, Glóra ehf, Reykjanesbæ
Burðarþols og lagnahönnuður hússins er Kristinn Eiríksson, Tensio ehf, Reykjavík.
Raflagnahönnuðir eru Gísli Lárusson / Guðni Lárusson, G-Lár ehf, Reykjanesbæ
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á.
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
[email protected]
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
[email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt en það er 0,3% af væntanlegu brunabótamati eignarinnar.
Háteigur
250 - Garður
69.900.000 kr.
Tegund: Raðhús
Stærð: 101fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 9.050.000