PRODOMO fasteignasala kynnir bjart og fallegt 3ja herbergja raðhús að Seljudal 32 í Njarðvík.
Laus til afhendingar við kaupsamning.
Eignin samanstendur af forstofu, hol, eldhús og stofu í opnu rými, tvö góð herbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Samtals er eignin 120 fm, þar af er bílskúr 23,2 fm.
Alrými eignarinnar er opið og bjart, þar er góð lofthæð. Innkeyrsla er hellulögð og í henni er snjóbræðsla. Góð verönd á baklóð. Eignin er göngufæri við leik- og grunnskóla, Stapaskóla.
Nánari lýsing:
Fostofa með flísum á gólfi, þar er góður fataskápur.
Hol með parketi á gólfi.
Eldhús, borðstofa og stofa með parketi á gólfi. Stílhrein eldhúsinnrétting frá HTH með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp, helluborði og viftu, ofn í vinnuhæð. Fá stofu er útgengt á góða verönd.
Herbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Þar er falleg innrétting, upphengt salerni og sturta.
Þvottahús er inn af baðherbergi, flísar á gólfi. Hvít innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Innangengt er í Bílskúr frá holi. Hann er fullfrágenginn. Gott geymsluloft og hurðaopnari.
Góð eign sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Seljudalur
260 - Njarðvík
80.400.000 kr.
Tegund: Raðhús
Stærð: 120fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2019
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 72.200.000
Brunabótamat: 58.810.000