PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt þriggja herbergja raðhús að Mardal 30 í Njarðvík.
Sérlega stílhrein og falleg eign þar sem öll rými eru rúmgóð. Alrými eignarinnar er opið og bjart. Mögulegt er að útbúa þriðja herbergið. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt a góða verönd. Dökk innrétting í eldhúsi með eyju. Þar er innbyggður ísskápur og uppþvottavél, helluborð og háfur.
Herbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Góð hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.
Þvottahús / geymsla er inn af forstofu. Þar eru flísar á gólfi og innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílaplan og stétt er hellulögð og í því er snjóbræðsla.
Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Mardalur
260 - Njarðvík
81.000.000 kr.
Tegund: Raðhús
Stærð: 120fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2021
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 73.600.000
Brunabótamat: 63.850.000