Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir fimm herbergja íbúð á þriðju hæð að Skógarbraut 916 í Reykjanesbæ. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Eignin var endurnýjuð töluvert 2018:
Eldhús og baðinnréttingar endurnýjaðar ásamt því að baðherbergi var flísalagt að hluta.
Rafmagn hefur verið endurnýjað að hluta og rafmangstafla endurnýjuð. 
Skipt var um ofna og ofnalagnir yfirfarnar og lagaðar eftir því sem þurfti.
Skipt var um frárennsli að plötu 1. hæðar. 
Blokkin var sprunguviðgerð og verður máluð á kostnað seljanda sumarið 2025.

Nánari lýsing:
Eldhús
með parketi á gólfi og stílhreinni innréttingu með helluborði, ofni og viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt baklóð.
Svefnherbergis gangur með parketi á gólfi, þar er lítill skápur.
Svefnherbergin fjögur eru með parketi á gólfum og það eru fataskápar í þeim öllum.
Baðherbergin tvö eru með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Þar er hvít innrétting og baðkar með sturtu. Annað baðherbergið er inn af hjónaherberginu.

Þvottaaðstaða er á fyrstu hæð og er sameiginleg fyrir allar íbúðirnar, þar er dúkur á gólfi. Sér geymsla er í sameign, þar er málað gólf. Á gólfum í sameign eru vínil flísar og teppi. 

Allar nánari upplýsingar veita:

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skógarbraut

262 - Reykjanesbær
51.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 124fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1978
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 49.150.000
Brunabótamat: 54.500.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin