Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu mikið endurnýjaða fjögurra herbergja neðri hæð að Suðurgötu 16 í Keflavík

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi.  Var yfirbyggð fyrir nokkrum árum og er óskráð rými.
Hol með parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa með parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er ljós innrétting með flísum á millis skápa. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Herbergin þrjú eru með parketi á gólfum.  Minnsta herberið var áður þvottahús, mögulegt er að nýta það aftur sem slíkt þar sem lagnir eru til staðar inn í vegg.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Þar er dökk innrétting og baðkar með sturtu.
Þvottaaðstaða hefur verið útbúin undir stiga efri hæðar, þar eru flísar á gólfi. Aðgengi að því rými er frá forstofu.

Búið er að endurnýja:
** Gólfefni og innihurðar
** Innréttingar
** Neysluvatnslagnir
** Ofna og ofnalagnir
** Glugga og þak
** Rafmagnstöflu og tengla, rafmagn yfirfarið

Góð staðsetning í nálægð við grunnskóla og leikskóla ásamt verslunum og þjónustu.
Afgirtur bakgarður með sólpalli sem er sameiginlegur með efri hæð. 

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

 

Suðurgata

230 - Keflavík
48.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 86fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1942
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 35.500.000
Brunabótamat: 32.000.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin