Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð að Háteig 16 í Keflavík. 

Nánari lýsing:
Hol 
með parketi á gólfi og nýlegum fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er hvít innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, AEG appstýrður ofn, helluborð, vifta og innbyggð AEG uppþvottavél. 
Stofa með parketi á gólfi, þaðan er útgengt á svalir. Nýleg svalahurð og flísar á svölum.
Herbergin tvö eru með parketi á gólfi. Nýlegur fataskápur í hjónaherberginu .
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er góð hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og bað með sturtu.
Geymsla er í sameign hússins, þar eru flísar á gólfi og aðstaða fyrir þvottavél. Einnig er sameiginleg hjóla/vagna geymsla.

** Allir gluggar hafa verið endurnýjaðir, plast gluggar og þrefalt gler.
** Nýlegt dyrasímakerfi með myndavél.
** Rafmangstafla í sameign nýlega endurnýjuð.
** Nýlegt myndavélakerfi í sameign.
** Stórt bílastæði fylgir eigninni.
** Bílskúrsréttur 

Góð eign á góðum stað sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Háteigur

230 - Keflavík
44.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 72fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1976
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 39.250.000
Brunabótamat: 44.050.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin