PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu mikið endurnýjaða fimm herbergja íbúð á jarðhæð að Suðurgötu 23 í Sandgerði, Suðurnesjabæ.
** Gluggar endurnýjaðir
** Eignin klædd að utan
** Þak hefur verið endurnýjað
** Ofnar endurnýjaðir
** Eldhús endurnýjað
** Innihurðar og parket endurnýjað
** Gluggatjöld eru nýleg ásamt fataskáp í hjónaherbergi
Nánari lýsing:
Andyri með parketi á gólfi.
Eldhús og stofa eru í opnu rými. Þar er parket á gólfi. Stílhrein hvít innrétting í eldhúsi með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Lítil eyja, þar er span helluborð.
Svefnherbergin fjögur eru með parketi á gólfum, fataskápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Þar er nýleg hvít innrétting og baðkar með sturtu.
Þvottahús / geymsla með parketi á gólfi.
Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Suðurgata
245 - Sandgerði
57.000.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 95fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1971
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 28.900.000
Brunabótamat: 49.050.000