PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt og vel viðhaldið einbýlishús ásamt bílskúr að Lyngbraut 4, Garði Suðurnesjabæ.
** Gluggar og gler endurnýjað
** Þakjárn og þakkantur endurnýjað
** Gestasalerni endurnýjað
** Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjað
** Innihurðar nýlegar
** Nýleg gólfefni
** Verönd með heitum potti
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Gestasalerni hefur nýlega verið endurnýjað, flísar á gólfi og lítil innrétting við vask.
Forstofuherbergi hefur nýlegt parket á gólfi og fataskáp.
Hol með nýju parketi á gólfi, þar er möguleiki á að hafa sjónvarpsaðstöðu.
Stofa með nýlegu parketi á gólfi og stórum gluggum.
Eldhús hefur nýlega innréttingu, eyju og öll tæki nýleg. Nýlegt parket á gólfi.
Þvottahús er inn af eldhúsi, flísar á gólfi, gert er ráð fyrir þvottavél og þurkara í innréttingu í vinnuhæð og hurð er út á baklóð.
Svefnherbergisgangur er með nýlegu parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting og baðkar með sturtu.
Svefnherbergin eru fjögur og hafa þau öll nýlegt parket á gólfi.
Bílskúr með máluðu gólfi, rafmagnsopnun á bílskúrshurð og inngangshurð frá baklóð
Góður pallur er á baklóð með heitum potti og skjólveggjum, skólveggur er einnig að framan þar sem er lítil verönd.
Lóð er mjög snyrtileg og vel viðhaldin, geymslu skúr á lóð og mikið pláss á bílaplani
Um er að ræða virkilega fallegt einbýlishús sem hefur verið mikið endurnýjað og vel við haldið í gegnum tíðina á frábærum stað í Garði Suðurnesjabæ. Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt, góðir pallar með skjólveggjum eru fyrir framan og aftan hús. Heitur pottur á baklóð.
Góð eign sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
[email protected]
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
[email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Lyngbraut
250 - Garður
87.900.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 178fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1978
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 55.750.000
Brunabótamat: 83.300.000