PRODOMO fasteignasala kynnir fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð að Skógarbraut 923 í Reykjanesbæ.
Nánari lýsing:
Eldhús með parketi á gólfi og ljósri innréttingu með eldavél, ofni og viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Svefnherbergis gangur með parketi á gólfi, þar er lítill skápur.
Svefnherbergin þrjú eru með parketi á gólfum og það eru fataskápar í tveimur þeirra. Eitt herbergjanna hefur verið stúkkað af frá stofunni.
Baðherbergi með dúk á gólfi. Þar er hvít innrétting og baðkar með sturtu.
Þvottaaðstaða er á fyrstu hæð og er sameiginleg fyrir allar íbúðirnar, þar er dúkur á gólfi. Sér geymsla er í sameign, þar er málað gólf.
**SÝNUM SAMDÆGURS**
Allar nánari upplýsingar veita:
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886, [email protected]
Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298, [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skógarbraut
262 - Reykjanesbær
41.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 93fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1978
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 42.100.000
Brunabótamat: 42.500.000