PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð ásamt bílskúr að Engjadal 8 í Njarðvík.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými. Þar er parket á gólfi, stílhrein hvít innrétting í eldhúsi. Frá stofu er útgengt á góða verönd með skjólveggjum.
Gluggalaust rými með flísum á gólfi sem nýtt er sem skrifstofa í dag. Þetta rými var áður geymslurými inn af þvottahúsi, auðvelt er að breyta aftur.
Herbergin þrjú eru með parketi á gólfi, fataskápar eru í þeim öllum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er hví innrétting, upphengt salerni og sturta.
Þvottahús er inn af forstofu, þar eru flísar á gólfi, hvít innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr með máluðu gólfi. Þar er hurðaopnari.
Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Engjadalur
260 - Njarðvík
77.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 146fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2017
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 65.000.000
Brunabótamat: 62.150.000