PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu gott fjögurra herbergja parhús að Akurgerði 3 í Vogum.
Vel skpulögð eign á góðum stað þar sem stutt er í skóla og leikskóla.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými, þar er parket á gólfi og útgengt á verönd. Gott skápa og vinnupláss í eldhúsi, gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi. Inn af því er fataherbergi sem hefur verið stúkkað af frá bílskúr.
Barnaherbergin tvö eru með parketi á gólfi, fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Hvít innrétting, upphengt salerni og sturta. Þvottaaðstaða er á baðherberginu, góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr með máluðu gólfi, þar er gott geymsluloft.
Innkeyrsla og stétt er hellulögð, snjóbræðsla er í innkeyrslu og stétt að inngönguhurð. Tvær verandir með skjólveggjum eru við húsið. Önnur veröndin er við gafl eignarinnar, þar er heitur og kaldur pottur ásamt útisturtu. Einnig er þar góður kofi sem er einangraður að mestu en frágangur eftir að hluta. Þar er fullbúinn sána aðstaða með flísum á gólfi. Hin veröndin er á baklóð hússins, hún er yfirbyggð að hluta og þar er gróðurhús.
Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Akurgerði
190 - Vogar
79.900.000 kr.
Tegund: Parhús
Stærð: 137fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2001
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 61.700.000
Brunabótamat: 75.200.000