PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt parhús að Mávatjörn 3 í Njarðvík.
Einstaklega vel skipulögð eign sem skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, sjónvarpsrými, þvottahús, tvö baðherbergi og fjögur svefnherbergi. Eitt herbergjanna hefur verið stúkkað af frá bílskúr svo hann nýtist í dag sem góð geymsla. Auðvelt er að breyta aftur. Mikil lofthæð og innfelld lýsing.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými, þar eru flísar á gólfi. Stílhrein eikarinnrétting í eldhúsi. Útgengt er á verönd frá stofu.
Sjónvarpshol með flísum á gólfi. Rennihurð er á milli stofu og sjónvarpshols.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er góð eikar innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, sturta og baðkar.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Inn af hjónaherbergi er baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt salerni og sturta.
Barnaherberbergin þrjú eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim öllum.
Þvottahús með flísum á gólfi. Innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Frá þvottahúsi er innangengt í skúr. Þar er í dag lítið rými með flísum á gólfi og fataskáp. Aðgengi frá því er í herbergið annarsvegar og bílskúr hinsvegar. Bílskúr er með máluðu gólfi, þar er hurðaopnari og gott geymsluloft.
Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt. Innkeyrsla er steypt og í henni er snjóbræðsla. Á baklóð er góð verönd með skjólveggjum, gert er ráð fyrir heitum potti.
Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Mávatjörn
260 - Njarðvík
89.900.000 kr.
Tegund: Parhús
Stærð: 156fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2006
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 77.500.000
Brunabótamat: 74.500.000