Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu parhús að Gónhól 14, 260 Reykjanesbæ.
Húsið er skráð 161 fm ásamt bílskúr. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/ borðstofu, sólskála, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr þar sem er þvottahús og herbergi, innangengt frá íbúð í bílskúr. Parhús á frábærum stað í Reykjanesbæ.


Nánari lýsing:
Forstofa hefur flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa og sólskáli hafa parket á gólfi og hurð frá sólskála út á verönd með heitum potti.
Eldhús hefur verið endurnýjað með fallegri hvítri innréttingu og góðri eyju sem hægt er að sitja við, parket á gólfi og hurð út á baklóð.
Barnaherbergin tvö hafa parket á gólfi
Hjónaherbergi hefur parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtu, handklæðaofn og innrétting við vask.
Bílskúr er í dag herbergi og þvottahús, í þvottahúsi er innrétting og gert er ráð fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð og málað gólf, herbergi í skúr hefur parket á gólfi.
Sólpallar eru bæði að framan og aftan við hús, pottur er á palli að framan.
Geymslu skúr er á baklóð sem þarf að klára að klæða að utan en efni er til staðar.

Hús á frábærum og vinsælu stað í Reykjanesbæ sem vert er að skoða.
Seljandi skoðar skipti á minni eign.


Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Gónhóll

260 - Njarðvík
81.900.000 kr.
Tegund: Parhús
Stærð: 161fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1991
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 68.000.000
Brunabótamat: 87.650.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin