Eign


PRODOMO Fasteignasala kynnir í einkasölu gott einbýli með fimm svefnherbergjum og tvöföldum bílskúr vel staðsett að Lyngmóa 3 í Reykjanesbæ. Hús á einni hæð með stórum grónum garði og góðu aðgengi.

Nánari lýsing:
Forstofa er björt flíslögð með skáp og hita í gólfi. 
Gestasalerni er á vinstri hönd innan forstofu salerni og handlaug.
Eldhús er opið inní stofu og hefur það góða eyju, eldhús var nýlega endurnýjað með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofa/borðstofa hefur nýlegt parket á gólfi og stóra glugga sem vísa út í garð.
Svefnherbergisgangur hefur parket á gólfi og glugga í enda gangs.
Hjónaherbergi hefur parket á gólfi og góðan fataskáp.
Barnaherbergin fjögur hafa öll parket á gólfi
Baðherbergi er ný tekið í gegn, flísar á gólfi og veggjum, sturta, baðkar, handklæðaofn og góð innrétting við vask.
Þvottahús er rúmgott, málað gólf, hillur, vaskur og útgengt á lóð að framan. Aðgengi er að geymslulofti í þvottahúsi sem er að hluta til yfir íbúð.
Bílskúr er tvöfaldur, bílskúrshurðaopnari á annarri hurðinni, niðurföll í gólfum og gryfja. Hurð með útgengi út í garð.
Góð verönd með skjólveggjum og heitum potti

Skipt hefur verið um glugga að hluta í húsi. 

Einbýli á besta stað í Reykjanesbæ þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir og alla helstu þjónustu og afþreyingu.

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.


 

Lyngmói

260 - Njarðvík
96.000.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 189fm
Herbergi: 6
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1977
Stofur: 1
Svefnherbergi: 5
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 78.500.000
Brunabótamat: 82.700.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin