Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt einbýlishús að Lómatjörn 11 í Njarðvík.

Um er að ræða sex herbergja hús sem skiptist í andyri, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, fjögur barnaherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi. Góður bílskúr. Glæsileg verönd með heitum potti. Vel staðsett þar sem stutt er í skóla, leikskóla og verslun.

Forstofa
með flísum á gólfi, þar er góður fataskápur.
Eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými með parketi á gólfum. Stílhrein hvít innrétting í eldhúsi með góðu skápa og vinnuplássi. Tvöföld gaseldavél og tveir ofnar, innbyggð uppþvottavél ásamt innbyggðum ísskáp og stórum frysti. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt salerni, sturta og frístandandi baðkar.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, fataherbergi með góðri innréttingu, baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt salerni og sturta.
Barnaherbergin eru fjögur, parket á gólfum ásamt því að fataskápar eru í þeim öllum. 
Bílskúrinn með epoxy á gólfi, innst í honum er góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Tvær útönguhurðar eru úr bílskúr.

Glæsileg eign í alla staði. Innbyggð lýsing í loftum. Innréttingar frá HTH. Margir útgangar eru úr eigninni, m.a. frá eldhúsi, baðherbergi og hjónaherbergi. Bílapan og stétt er steypt, þar er snjóbræðsla í stórum hluta og lýsing í plani að hluta. 200 fm verönd úr viðhaldslausu plastefni, klæðning og skjólveggir úr lerki og heitur pottur. 

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Lómatjörn

260 - Njarðvík
133.000.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 246fm
Herbergi: 6
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2018
Stofur: 1
Svefnherbergi: 5
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 115.750.000
Brunabótamat: 121.400.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin