Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja íbúð á efri hæð að Grænás 3a í Reykjanesbæ.
Virkilega vel viðhaldin eign sem hlaut mikillar endurnýjunar á árunum 2006-2010. Þá voru settar nýjar hurðar, innréttingar skápar og baðherbergi einnig endurnýjað. 

** Nýtt þak 2021.
** Sprungufyllt og málað 2021.

Nánari lýsing:
Anddyri með parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi og góð viðar innrétting.
Þvottahús er innaf eldhúsi með góðri innréttingu og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er gengið inn í sólstofu með flísum á gólfi. Frá sólhúsi er gengið út á svalir.
Herbergin þrjú eru með parketi á gólfum og eru fataskápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er góð innrétting og sturta.
Rúmgóð geymsla er innan íbúðar, þar eru hillur.
Sameign er mjög snyrtileg, vínildúkur á gólfum.

Farið var í sprunguviðgerðir og húsið heilmúrað árið 2019. Þak endurnýjað 2019. Gluggar hafa verið endurnýjaðir að hluta. Ofnar hafa verið endurnýjaðir.  

Allar nánari upplýsingar veitir:

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
[email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Grænás

260 - Njarðvík
59.500.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 125fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1957
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 44.650.000
Brunabótamat: 50.950.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin