Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir gott einbýlishús með innbyggðum bílskúr að Lágseylu 2 í Njarðvík.

Forstofa
 með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa með parketi á gólfi, þaðan er útgengt á verönd með skjólveggjum.
Eldhús / borðstofa með flísum á gólfi og ljósri innréttingu með góðu skápa og vinnuplássi. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Barnaherbergin tvö eru með parketi á gólfum.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum. Hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.
Þvottahús með flísum á gólfi. Þar er ljós innrétting. Frá þvottahúsi er innangengt í bílskúr.
Bílskúri með máluðu gólfi.

Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt. Bílaplan er malbikað með stæði fyrir 3-4 bíla. Alrými eignarinnar er opið og bjart. Tvær verandir eru við húsið, báðar með skjólveggjum. Á baklóð er köld geymsla.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

​​​​​​Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Lágseyla

260 - Njarðvík
89.900.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 162fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2002
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 79.500.000
Brunabótamat: 72.400.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin