Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir Hólagötu 13 í efri hæð og bílskúr sem búið er að breyta í stúdíóíbúð, í Njarðvík. Birt stærð 152,8 fm og þar af íbúð 130.3 fm. og bílskúr 22,5 fm.
Um er að ræða virkilega góða og fjölskylduvæna eign á flottum stað í Njarðvík. Stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir og grunn-, leikskóla.


*** 3 svefnherbergi og tvö baðherbergi
*** Bílskúr er með útleiguíbúð þar er 3. salernið
*** Fataherbergi inn af hjónaherbergi
*** Nýlegar eldhúsinnréttingar
*** Nýlegt parket

** Girðing fyrir framan er nýleg og nýleg á hlið. 
** Búið að drena að hluta nýlega.
** Búið að endurnýja glugga á svefnherbergjum.
** Þak nýlega menjað og málað.
** Lokað veitukerfi.

Nánari lýsing
Forstofa: Lakkaður stigi upp á stiga pall. Skápur undir stiga.
Þvottahús og geymsla: Á stigapalli er þvottahús og geymsla þar inn af, í geymslunni er búið að setja salerni. 
Stofa: Björt og rúmgóð ásamt borðstofu sem búið er að breyta í fjórða svefnherbergið.
Eldhús með nýlegri hvítri innréttingu.
Herbergjagangur með þremur svefnherbergjum. Hjónaherbergið með fataherbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, nýleg borðplata, vaskur, salerni og baðkar.
Geymsluloft yfir íbúðinni. Gengið upp í gegnum fellistiga á gangi.
Svalir eru stórar, eru í L. Hægt er að ná sólinni þar frá sólarupprás þangað til hún er nánast sest. Möguleiki að gera íverustað ofan á bílskúr.

Bílskúr: Búið er að gera stúdíoíbúð. 

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Hólagata

260 - Njarðvík
75.900.000 kr.
Tegund: Hæð
Stærð: 152fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1979
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 58.800.000
Brunabótamat: 65.010.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin