Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð við Skólabraut 3 í Njarðvík.
Íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.


Nánari lýsing:
Forstofa
 með flísum á gófli og góðum fataskáp.
Hol með parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa með parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi og eikar innréttingu. Flísar á mlli skápa, innbyggð uppþvottavél. Úr borðkrók er útgengt á hellulagða stétt með skjólveggjum.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Barnaherbergin tvö eru með parketi á gólfi, í þeim eru fataskápar.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum. Ljós innrétting, upphengt salerni, sturta og handklæðaofn.
Þvottahús með flísum á gólfi og hillum. Inn af þvottahúsi er góð geymsla, þar eru flísar á gólfi og hillur.

Mjög snyrtileg eign, opin og björt. Það er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á fyrstu hæð.
Vel staðsett í innra hverfi þar sem stutt er í skóla og leikskóla.


Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skólabraut

260 - Njarðvík
57.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 106fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2005
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 51.450.000
Brunabótamat: 54.350.000
Áhvílandi: 20.786.770

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin