Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir góða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð ásamt bílskúr að Beykidal 10 í Njarðvík.

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með flísum á gólfi. Stílhrein innrétting þar sem gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Herbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherberg með flísum á gólfi og veggjum. Hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtu.
Þvottahús/geymsla með flísum á gólfi. Góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Tvö bílastæði fylgja eigninni. Einnig er sameiginleg hjóla / vagnageymsla.

Parket á íbúðinni er nýlegt.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.





 

Beykidalur

260 - Njarðvík
65.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 120fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2008
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 53.100.000
Brunabótamat: 57.200.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin