Eign


PRODOMO Fasteignasala kynnir í einkasölu þriggja herbergja 99,9 fm. endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og skjólgóðri verönd til suðurs við Bjarkardal 33, Reykjanesbæ.  Íbúðin sjálf er um 91,6 fm. og skiptist í forstofu, eldhús sem er opið inn til borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla 8,3 fm. er staðsett í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.  Vel staðsett og sérmerkt bílastæði fylgir íbúð.

Falleg og vel skipulögð eign, vel staðsett í rólegu hverfi þar sem stutt er í skóla og leikskóla.
Íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.


Nánari lýsing:
Umrædd eign er endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi, björt og falleg með glugga á þrjá vegu. 
Forstofa er með fataskáp, millihurð og flísum á gólfum.
Eldhús og stofa eru samliggjandi í opnu og björtu rými. Eldhús er með fallegum ljósum innréttingum og grárri borðplötu. Harðparket á gólfum og í svefnherbergjum.
Svefnherbergin eru tvö, mjög rúmgóð og björt. Hjónaherbergi er með góðum fataskápum og þaðan útgengt  út á skjólgóða viðarverönd sem snýr í suður.
Baðherbergi er með sturtubaðkari, upphengdu salerni og fallegri ljósri vaskinnréttingu með speglaskáp. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar eru á gólfum og vegg að hluta.
Sérgeymsla er staðsett í sameign um 8,3 fm. að stærð ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Einkabílastæði fyrir framan inngang, vel staðsett og merkt íbúð.


Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Bjarkardalur

260 - Njarðvík
59.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 99fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2009
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 49.200.000
Brunabótamat: 46.000.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin