Eign


PRODOMO Fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt steypt 3-4 herbergja endaraðhús 87,3m² við Leirdal í Innri-Njarðvík Reykjanesbæ. 

* Upptekin loft í alrými eignarinnar
* Sérstakar hljóðvistar plötur í alrými eignar
* 2 -3 svefnherbergi, geymsla er með glugga og hægt að nýta sem þriðja herbergið.
* Gólfhiti er í húsinu.
* Sólpallur út frá stofu með heitum potti
* Geymslu skápar á verönd.


Lýsing eignar:
Komið er inn í flísalagða forstofu, hvítir skápar og flísar á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og í sturtu, rúmgóð innrétting mað vask ásamt upphengdu salerni, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara á baði ásamt glugga.
Eldhúsið og stofan eru í opnu rými - upptekin loft. 
Eldhúsið er með hvítri innréttingu ásamt ofni, innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél.
Stofan er opin og björt, útgengt  á lokaðan afgirtan suður sólpall með heitum potti.
Hjónaherbergið er rúmgott með parket á gólfi og sérsmíðuðum skápum.
Barnaherbergi með parket á gólfi og skáp.
Geymsla er innan íbúðar sem gefur möguleika að nýta sem þriðja svefnherbergið.


Virkilega vel skipulagt raðhús, steypt bílastæði er fyrir framan hús og steypt ruslaskýli.
Snjóbræðsla í innkeyrslu.

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Leirdalur

260 - Njarðvík
69.900.000 kr.
Tegund: Raðhús
Stærð: 87fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2018
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Fasteignamat: 56.350.000
Brunabótamat: 47.400.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin