Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð að Breiðbraut 670 í Reykjanesbæ. 

Eignin var töluvert endurnýjuð 2017, skipt var um gólfefni, baðherbergi var endurnýjað og eldhús einnig. Rafmagn hefur verið endurnýjað að hluta og rofar og tenglar endurnýjaðir. Einnig er búið að endurnýja rafmagnstöflu. Búið er að skipta um alla ofna auk þess að gler hefur verið endurnýjað að hluta til í húsinu. 

Nánari lýsing:
Hol
með parketi á gólfi og geymslu með fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi og  fallegri  innréttingu með helluborði, ofni og viftu. Uppþvottavél og ísskápur fylgja einnig.
Stofa / sjónvarpshol með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfum, tveir fataskápur eru í hjónaherbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Þar er nýleg innrétting og baðkar með sturtu.
Geymsla er innan íbúðar og einnig er sér geymsla í sameign.

Þvottaaðstaða er  á hverri hæð og er sameiginleg fyrir allar íbúðirnar á hæðinni, þar er epoxy á gólfi.  Sameign er mjög snyrtileg, á gólfum eru vínil dúkur og teppi. 

**SÝNUM SAMDÆGURS**

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Breiðbraut

262 - Reykjanesbær
45.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 99fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1969
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 39.250.000
Brunabótamat: 45.700.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin