Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu einbýlishús að Hólagötu 1b í Vogum

Um er að ræða einbýlishús með þremur svefnherbergjum, auðvelt er að bæta því fjórða við, rúmgóðri stofu, eldhúsi sem er opið við stofu, þvottahúsi, góðu baðherbergi og góðri verönd með heitum potti.
Frábær staðsetning innalega í botnlangagötu, stutt í leiksskóla, grunnskóla, íþróttaaðstöðu, útivistarsvæði og þjónustu.   

 
**Baðherbergi nýlega tekið í gegn
**Eldhús nýlega tekið í gegn
**Allir gluggar nema tveir endurnýjaðir
**Stór verönd og heitur pottur
**Stutt í flesta þjónustu


Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er opið inn í alrými eignar, þar eru flísar á gólfi, nýleg innrétting og hurð út á stóra verönd.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfum, þar er mikil lofthæð.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturta og falleg innrétting. Baðherbergi var nýlega endurnýjað
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Barnaherbergi innan íbúðar er eitt í dag en lítið mál að bæta öðru við einnig er eitt herbergi í hluta af bílskúr sem er innangengt frá íbúð. Parket á gólfum og fataskápur í öðru þeirra.
Þvottahús mjög rúmgott með hurð út á bílaplan og innagengt frá þvottahúsi í bílskúr.
Milliloft er yfir herbergi í bílskúr og einnig er milliloft yfir herbergjum og baðherbergi innan íbúðar. 
Stór verönd með skjólveggjum og heitum pott, graslögð lóð bakatil og malarlagt bílaplan.

Góð eign á góðum stað sem vert er að skoða.

Allir nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Hólagata

190 - Vogar
81.900.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 154fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2002
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 70.550.000
Brunabótamat: 79.000.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin