Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu gott fimm herbergja einbýlishús ásamt bílskúr að Þverholti 6 í Keflavík.

Eignin var mikið endurýjuð árið 2021. Þá voru innréttingar, tæki, gólfefni, hurðar, vatns og raflagnir endurnýjaðar ásamt skolpi. Gluggar hafa verið endurnýjaðir undanfarin ár.


Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi.
Gestasalerni með flisum á gólfi. Lítil innrétting og upphengt salerni.
Borðstofa með parketi á gólfi.
Stofa og sjónvarpsrými með parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er stílhrein grá innrétting með innbyggðri uppþottavél.
Þvottahús með flísum gólfi. Þar er ljós innrétting með góðu skápaplássi, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Herbergisgangur með parketi á gólfi.
Herbergin fjögur eru með parketi á gólfum. Fataskápar eru í þremur þeirra. Eitt herbergjanna er innst í skúrnum. Áður voru fjögur herbergi í húsinu, tvö þeirra voru sameinuð í eitt en auðvelt er að breyta því aftur.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Grá innrétting, upphengt salerni og sturta.
Bílskúr hefur verið endurbyggður að miklu leiti. Innangengt er í hann frá þvottahúsi. Hluti af honum er nýttur sem auka svefherbergi, mögulegt að útbúa salernisaðstaðu í bílskúr og kjallari er undir honum öllum.

Lóð hefur verið jarðvegsskipt að mestu og klárt er fyrir verönd og skjólveggi.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og íþróttamannvirki sem og helstu þjónustu.


Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

 

Þverholt

230 - Keflavík
105.000.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 175fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1966
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 77.100.000
Brunabótamat: 81.470.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin