Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu góða mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð að Heiðarholti 30 í Keflavík.  
** OPIÐ HÚS FÖSTUDAGINN 13 SEPTEMBER 2024 FRÁ 17:00 - 17:30

Nánari lýsing:

Forstofa með með parketi á gólfi og svörtum fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi og stílhreinni svartri innréttingu með helluborði, ofni og háf. Þar er innbyggður ísskápur og uppþvottavél. 
Stofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á svalir.
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfum og góðum fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, svartri innréttingu, handklæðaofn, upphengdu salerni og baðkari með sturtu.
Geymsla i sameign með máluðu gólfi.
Þvottaaðstaða er sameiginleg og er á hverri hæð, málað gólf. Sameign er mjög snyrtileg. Sameiginleg hjóla/vagnageymsla, málað gólf.

Árið 2022 var íbúðin tekin í gegn. Þá var skipt um öll gólfefni, innréttingar, eldhústæki, blöndunartæki í eldhúsi og baði. Neysluvatns lagnir hafa verið endurnýjaðar sem og rafmagn og rafmagnstafla. Ofnar voru ýmist spraulakkaðir eða endurnýjaðir. Innréttingar eru sérsmíðaðar í eldhús og bað, auk skápa í herbergi og anddyri.  Gluggar endurnýjaðir að hluta ásamt því að svalahurð er nýleg.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdótti Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

​​​​​​Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Heiðarholt

230 - Keflavík
47.000.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 78fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1985
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 37.550.000
Brunabótamat: 42.500.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin