Eign


PRODOMO Fasteignasala kynnir í einkasölu Heiðarveg 19, 230 Reykjanesbæ.

OPIÐ HÚS MÁNUDAGINN 14. OKTÓBER FRÁ KL 17:30 TIL 18:00


Íbúðin er 3ja herbergja, 57,1 fm með sérinngangi á efri hæð í tvíbýlishúsi á góðum stað í Keflavík.
Tvö svefnherbergi, baðherbergi,  hol, stofa og eldhús með borðkrók.


Lýsing eignar: .
Anddyri með parket á gólfi og fatahengi
Hol með parket á gólfi.
Eldhús með ágætis innréttingu sem er filmuð, korkdúk á gólfi, borðkrókur er í eldhúsinu.
Stofa rúmgóð með parket á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parket á gólfi.
Baðherbergið nýlega standsett, flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi og nýleg innrétting við vask.
Sér bílastæði og bílskúrsréttur.


Íbúðin var tekinn í gegn að innan að einhverju leiti nýlega en húsið að utan og gluggar þarfnast viðhalds.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.


 

Heiðarvegur

230 - Keflavík
31.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 57fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1943
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Fasteignamat: 28.800.000
Brunabótamat: 25.300.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin