Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu einbýlishús með stórum bílskúr að Brekkugötu 3 Vogum.

Um er að ræða einbýlishús innst í botnlanga götu, 184,5 fm og þar af er bílskúr 75,2 fm.


Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi.
Þvottahús er inn af forstofu, mjög rúmgott með tveimur gluggum.
Barnaherbergi eru tvö og hafa þau parket á gólfi.
Hjónaherbergi hefur parket á gólfi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, nýlega innréttingu við vask og baðkar með sturtu.
Eldhús er opið við stofu og hefur góða innréttingu.
Stofa/borðstofa hefur flísar á gólfum og hurð út á verönd.
Bílskúr er stór með góða lofthæð, tvær bílskúrshurðir, sérhannaður fyrir jeppa- og tækjaáhugafólk, geymsluloft, fjöldi niðurfalla, geymsla innst og límtrésbiti í mæni.
Lóð er stór og grasilögð að stórum hluta og verönd með heitum potti.

*Nýjir gluggar 2023
*Ný hitaveitugrind 2024
*Nýjar ofnalagnir 2024

**SÝNUM SAMDÆGURS**

Allar nánari upplýsingar veita:

Hákon Ó. Hákonarson 
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 899-1298 
[email protected]

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali 
420-4030 / 860-6886 
[email protected] 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.






 

Brekkugata

190 - Vogar
79.500.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 184fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2000
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 76.500.000
Brunabótamat: 72.100.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin