Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu 191,9 m² einbýlishús og þar af er bílskúr skráður 80,2 m² við Brekkustíg í Sandgerði,  Suðurnesjabæ.
Um er að ræða hús á þremur hæðum.


Nánari lýsing:
Jarðhæð
Andyri hefur flísar á gólfi.
Þvottahús hefur flísar á gólfi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, þar er innrétting, handklæðaofn og baðkar.
Svefnherbergi með parket á gólfi.
Alrými hefur parket á gólfi, þaðan er stiga upp á miðhæð eignar.
Miðhæð 
Andyrir hefur flísar á gólfi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi, þar er innrétting.
Eldhús hefur parket á gólfi, hvítlakkaða innréttingu þar sem gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa hafa partket á gólfi og er stigi þaðan uppá í ris.
Ris
Svefnherbergin eru tvö og hafa þau parket á gólfi.

Skolp hefur verið endurnýjað.
Gluggar endurnýjaðir að hluta.
Rafmagn endurnýjað að hluta.
Nýleg klæðning er á hluta húss.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030, [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030, [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.







 

Brekkustígur

245 - Sandgerði
62.900.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 191fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1928
Stofur: 2
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 46.700.000
Brunabótamat: 52.500.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin