Eign


PRODOMO Fasteignasala kynnir til sölu þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í 9 íbúða húsi í Reykjanesbæ.
Um er að ræða íbúð á góðum stað í Ásbrúarhverfi þar sem er stutt í skóla og leikskóla.

Íbúð skiptist í hol, geymslu innan íbúðar, þvottahús, eldhús,stofu / borðstofu og tvö svefnherbergi einnig er geymsla utan íbúðar.

Nánari lýsing:
Hol / gangur hefur teppi á gólfi.
Eldhús hefur dúk á gólfi og gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa / borðstofa hefur teppi á gólfi og hurð út á rúmgóðar svalir.
Herbergin bæði hafa teppi á gólfi og góða fataskápa.
Baðherbergi hefur dúk á gólfi og baðkar með sturtu
Þvottahús hefur dúk á gólfi og hillur
Geymsla inn af íbúð hefur dúk á gólfi og hillur
Geymsla er einnig í sameign og hefur hún málað gólf.

Járn á þaki hefur verið endurnýjað og einnig er búið að endurnýja rafmagn að hluta og endurnýja alla tengla.

Allir nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.



 

Breiðbraut

262 - Reykjanesbær
49.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 106fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 1992
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 46.450.000
Brunabótamat: 54.400.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin