Eign


PRODOMO fasteignarsala kynnir í einkasölu góða 2ja herbergja íbúð á jarðhæð að Lindarbraut 635 í Reykjanesbæ. 

Eldhús og stofa
eru í opnu rými. Þar er parket á gólfi. Ljós innrétting í eldhúsi. Ísskápur og uppþvottavél fylgja. Nýleg eldavél og háfur.  Frá stofu er útgengt á litla verönd með skjólveggjum.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og inn af er lítið fataherbergi.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi. Þar er jós innrétting, handklæðaofn og baðkar með sturtu.
Sér geymsla fylgir íbúð. Sameiginlegt þvottahús í húsinu þar sem eru sameiginleg tæki. 

Nýlegt parket er á íbúðinni.​​​​​​ Hún selst með húsgögnum. Húsið lítur vel út að utan og er snyrtilegt. Tveir inngangar eru á húsinu. Stigagangur er teppalagður og snyrtilegur. Sameign og lóð eru fullfrágengin. Út á lóðinni er 33,8 fm steynsteypt útigeymsla með skúrþaki sem tilheyrir húsinu. Einnig er stæði fyrir sorpgáma með steinsteyptum skjólveggjum fyrir utan húsið. 

Allar nánari upplýsingar veitir LiljaValþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

​​​​​​Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Lindarbraut

262 - Reykjanesbær
33.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 58fm
Herbergi: 2
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1956
Stofur: 1
Svefnherbergi: 1
Fasteignamat: 25.400.000
Brunabótamat: 29.300.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin