Eign


PRODOMO Fasteignasala kynnir í sölu fimm herbergja 210,7 fm einbýlishús þar af 33,7 fm innbyggðum bílskúr við Sjónarhól 5 í Sandgerði.

Forstofa með flísum á gólfi og þar er góður fataskápur.
Gestasalerni er innaf forstofu með flísum á gólfi og veggjum, upphengt salerni, lítil innrétting og sturta.
Sjónvarpshol hefur parket á gólfi.
Stofa og borðstofa með parket á gólfi, útgengt er á afgirta verönd frá stofu.
Eldhús hefur parket á gólfi, fallega innréttingu, ásamt eldunnareyju og tækjum, eldhús og stofa eru eitt rými.
Barnaherbergin eru þrjú og hafa þau öll parket á gólfi og skápar eru í tveimur þeirra.
Hjónaherbergi með parket á gólfi og opnum fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar, sturta, innrétting. Útgengt er á afgirta verönd frá baðherbergi.
Þvottahús með flísum á gólfi, innrétting. innangengt er frá þvottahúsi í bílskúr.
Bílskúr er rúmgóður.
Gólfhiti er í öllu húsinu.

Húsið er timburhús klætt að utan með flísum, þakkantur er ófrágenginn en efnið í hann fylgir með.


Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Sjónarhóll

245 - Sandgerði
89.000.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 210fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2009
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Fasteignamat: 76.300.000
Brunabótamat: 94.800.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin