PRODOMO fasteignasala kynnir fallegt parhús að Kjarrmóa 13 í Njarðvík.
Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.
Góð staðsetning í botngötu þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki og flesta þjónustu.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Hol með parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi, þar er sprautuð innrétting. Inn af eldhúsi er rými sem áður var þvottahús en er í dag nýtt sem búr.
Stofa, borðstofa og sjónvarpshol með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á verönd.
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum. Mögulegt er að bæta við þriðja herberginu þar sem borðstofan er, það var herbergi áður.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, þar er hiti í gólfi. Ljós innrétting, upphengt salerni og sturta.
Þvottahús er inn af baðherbergi. Þar eru flísar á gólfi og góð innrétting.
Bílskúr með flísum á gólfi. Þar er hurðaopnari, geymsluloft og lítil geymsla innst í skúrnum.
Alrými eignarinnar er opið og bjart með mikilli lofthæð. Léttur veggur skilur að eldhús og stofu svo auðvelt er að opna rýmið enn meir. Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt, bílaplan og stétt er hellulagt og það er hitalögn í því að hluta til. Á baklóð er góð verönd með skjólveggjum.
Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Kjarrmói
260 - Njarðvík
74.000.000 kr.
Tegund: Parhús
Stærð: 138fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1997
Stofur: 1
Svefnherbergi: 3
Fasteignamat: 59.900.000
Brunabótamat: 74.100.000