Eign


PRODOMO fasteignasala kynnir 3ja herbergja íbúð að Lyngholti 15 í Keflavík. Góð staðsetning í Holtaskóla hverfi í Reykjanesbæ.
Um er að ræða vel staðsetta og mikið endurnýjaða íbúð á neðri hæð í tvíbýli með sérinngangi.


Nánari lýsing:
Forstofa hefur flísar á gólfi og fatahengi.
Hol hefur parket á gólfi.
Eldhúsið hefur parket á gólfi, svarta innréttingu með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp.
Stofa/borðstofa hefur parket á gólfi.
Hjónaherbergi hefur parket á gólfi þar er nýlegur fataskápur.
Barnaherbergi er með parket á gólfi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum að hluta, góða innréttingu, sturtu og handklæðaofn.
Þvottahús er sameiginlegt með efri hæð og gengið er inn í það frá forstofu.
Geymsla er í sameign undir stiga.
Sér bílastæði ásamt bílskúrsplötu þar sem bílskúrsréttur fylgir íbúðinni.

.
* Eldhús endurnýjað 2017
* Nýtt parket 2017
* Nýjar innihurðar 2017
* Rafmagn endurnýjað að hluta 2017
* Nýlegur sólpallur fyrir framan hús ásamt heitum potti.
* Bílastæði fylgir eign ásamt bílskúrsrétti


Mjög snyrtileg íbúð á góðum stað þar sem stutt er í flest alla þjónustu.
                  *** SÝNUM SAMDÆGURS***

Allir nánari upplýsingar veita:
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] 
Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.



 

Lyngholt

230 - Keflavík
47.900.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 98fm
Herbergi: 4
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1958
Stofur: 2
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 37.350.000
Brunabótamat: 43.700.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin