PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu gott fimm herbergja raðhús að Hlíðarvegi 54 í Njarðvík.
Eignin er 145,2fm, þar af er bílskúr 28fm. Alrými er opið og bjart. Frábær staðsetning þar sem stutt er í leikskóla, skóla og ýmsa þjónustu.
Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð undanfarin ár :
** Eldhús, baðherbergi, gólfefni og innihurðar.
** Þak hefur verið endurnýjað sem og gluggar að mestu.
** Ofnalagnir og ofnar endurnýjað að hluta.
** Neysluvatn
** Skolp frá húsi að götu
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með flísum á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er stílhrein hvít innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgegnt á verönd. Í stofu er kamína.
Herbergisgangur með parketi á gólfi.
Herbergin fjögur eru með parketi á gólfum. Góðir fataskápar eru í einu þeirrra sem í dag er nýtt sem fataherbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.
Þvottahús / geymsla með flísum á gólfi.
Bílskúr er fullfrágenginn, epoxy á gólfi.
Verönd á baklóð með heitum potti.
Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Hlíðarvegur
260 - Njarðvík
69.900.000 kr.
Tegund: Raðhús
Stærð: 145fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1970
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 52.600.000
Brunabótamat: 63.950.000