Eign


PRODOMO Fasteignasala kynnir í einkasölu góða þriggja herbergja íbúð á 1.hæð ásamt stæði í bílakjallara að Vatnsnesvegi 29 í Keflavík
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Eignin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu, tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús og tvær geymslur. 

Forstofa/hol
með parketi á gólfi og fataskáp.
Stofa er parketlögð, þaðan er útgegnt á svalir.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er eikar innrétting með góðu skápa og vinnuplássi. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergin eru með parketi á gólfum, fataskápur er í öðru þeirra.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi og á veggjum, þar er eikar innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtu.
Í þvottahúsi eru flísar á gólfi og veggjum að hluta, þar er ljós innrétting með góðu skápaplássi. 
Tvær geymslur fylgja eigninni, önnur er innan íbúðar, þar er parket á gólfi. Hin er í kjallara hússins.

* Snyrtileg sameign og stigagangur
* Flísalagðar svalir eru með glerlokun
* Sér bílastæði fylgir eigninni í bílakjallara
* Eignin er vel skipulögð, alrýmið er opið og bjart.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 

Vatnsnesvegur

230 - Keflavík
59.500.000 kr.
Tegund: Fjölbýli
Stærð: 102fm
Herbergi: 3
Inngangur: Sameiginlegur
Byggingaár: 2002
Lyfta:
Stofur: 1
Svefnherbergi: 2
Baðherbergi: 1
Fasteignamat: 45.100.000
Brunabótamat: 52.170.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin