Eign


 
PRODOMO fasteignasala kynnir vel staðsett einbýlishús ásamt bílskúr að Starmóa 14 í Reykjanesbæ.  

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Gestasalerni er inn af forstofu og hefur flísar á gólfi, lítin vask og klósett.
Eldhús með flísum á gólfi og hvítri innréttingu, þar er helluborð og háfur Gert er ráð fyrir uppþvottavél og stórum ísskáp.
Stofa / borðstofa með parketi á gólfi. 
Sjónvapshol með flísum á gólfi, útgengt út á verönd.  Mögulegt að breyta í herbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum. Góð innrétting, baðkar með sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn og gólfhiti. 
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Herbergin tvö eru með parketi á gólfum.
Þvottahús  með flísum á gólfi og innréttingu.  Útgengt er út á baklóð og inn í bílskúr. 
Herbergi inn af forstofu þar sem gengið er inn í þvottahús er með flísum á gólfi.
Bílskúr er 38,7 fm, málað gólf, þar er hurðaopnari.
Verönd með skjólveggjum, þar er heitur pottur.

Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt. Innkeyrsla er hellulögð og í henni er hitalögn. Neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar. Eignin var máluð að utan sumarið 2022.

Frábær staðsetning í rólegri botnlangagötu. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, íþróttamannvirki og flesta þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]  


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.


 

Starmói

260 - Njarðvík
83.400.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 191fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 1992
Stofur: 2
Svefnherbergi: 3
Baðherbergi: 3
Fasteignamat: 69.450.000
Brunabótamat: 82.100.000

Senda fyrirspurn vegna

Senda á vin