PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fimm herbergja einbýlishús að Birkidal 3 í Njarðvík.
Birkidalur 3 er 180 fm timburhús á einni hæð á steyptri plötu með hita í gólfi, húsið er klætt með áli , gluggar eru úr plasti. Bílskúr er 29 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með flísum á gólfi. Þar er hvít innrétting með lítilli eyju, helluborði og háf. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á verönd.
Hol með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi. Inn af því er fataherbergi ásamt rými fyrir annað baðherbergi sem er óklárað.
Barnaherbergin þrjú eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í tveimur þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að mestu. Sturtuklefi er lélegur.
Þvottahús með máluðu gólfi, þar er innrétting.
Bílskúr er ekki fullfrágenginn og það lekur með bílskúrshurð í ákveðinni vindátt.
Eignin er vel skipulögð og alrýmið er opið og bjart með mikilli lofthæð. Góð staðsetning þar sem stutt er í skóla og leikskóla.
Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Birkidalur
260 - Njarðvík
73.000.000 kr.
Tegund: Einbýli
Stærð: 180fm
Herbergi: 5
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2007
Stofur: 1
Svefnherbergi: 4
Baðherbergi: 2
Fasteignamat: 74.550.000
Brunabótamat: 79.900.000