PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu 78,4 fm atvinnubil ásamt 73 fm óskráðu millilofti að Hólmbergsbraut 17G, 230 Reykjanesbæ.
Um ræðir stálgrindarhús á steyptum sökkli klætt með yl-einingum byggt 2017.
Stór innkeyrsluhurð er að framan ásamt inngönguhurð.
Húsnæðið hentar vel fyrir ýmsan rekstur og stutt er í flugþjónustusvæði Keflvíkurflugvallar en nýtist einnig vel sem geymsluhúsnæði.
Milliloft er 73 fm og er lofthæð neðrihæðar 268 cm. Milliloft hefur parket á gólfi að hluta.
Búið er að útbúa salerni með vask á neðrihæð og einnig er búið að setja upp eldhúsinnréttingu á neðrihæð.
Hiti er í gólfi neðri hæðar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]
Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Hólmbergsbraut
230 - Keflavík
33.900.000 kr.
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Stærð: 78fm
Herbergi: 2
Inngangur: Sér
Byggingaár: 2017
Fasteignamat: 18.050.000
Brunabótamat: 34.300.000